|
Bjarni Ólafsson AK 70 Heimasíða áhafnar á Bjarna Ólafssyni AK 70 |
|
Vafraðu umSímar og E-mail Brú: 851-2077Áhöfn: 851-2078 E-mail brú: boak70@simnet.is Eldra efni Tenglar
Netfang umsjónarmanns ak70@internet.is |
Flettingar í dag: 40 Gestir í dag: 14 Flettingar í gær: 179 Gestir í gær: 96 Samtals flettingar: 215848 Samtals gestir: 94351 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:51:15 Blogg1.3.2010ÖrbloggÖrstuttar fréttir af okkur. Löndun gekk með mikklum ágætum eins og við var að búast og almenn ánægja með hráefnið sem við komum með að landi. Við erum núna ný skriðnir inn í Faxaflóann og bíðum eftir að birti, en loðnan veiðist ekki nema í björtu. Nú er mál að drífa sig í háttin og vera tilbúinn í fjörið í fyrramálið. Meira og nánara blogg kemur síðar. 27.2.2010ÓtitlaðGóðan dag kæru netverjar. Af okkur er það helst að frétta að við erum á leiðinni á Nes með 1200 m3 en eitthvað vigtar það nú minna þar sem þessi farmur fer allur í hrognavinnlu eins og sá síðasti, við lönduðum síðast einnig í hrogn og kom sá farmur með eindæmum vel út eða um 157 tonn af eðal íslenskum loðnuhrognum sem japanir gúffa í sig af mikilli list, enda segja þeir að þetta auki einhverja æðri getu. Þessi túr gekk að sjálfsögðu vel þó það hafi verið drulluveður á miðunum skammt vestur af Akranesi, en uppúr 08:23 blés Kapeinn Gísli í lúðra, tókum við 4 köst og fram að myrkri og lögðum af stað í land í gærkvöldi. Erum við staddir í þessum töluðu orðum í skítaveðri við Ingólfshöfða og verðum væntanlegir um miðja nótt á Neskaupsstað. 22.2.2010ÓtitlaðÞá er loðnuvertíðin byrjuð aftur eftir smá hlé og ekki veitti af, enda búnir að fara 2 túra í beit. Nei, nei það voru nú góðar ástæður fyrir því að við fórum í land. það var vegna þess að kvótastaðan bauð ekki upp á annað, planið er að gera sem mest úr þessu fáu tonnum sem við eigum og landa í hrogna kreistingu því sem eftir. Eftir því líkt vísindlega mælingar Við erum núna á landleið eftir að hafa fiskað 1800 tonn. Við byrjuðum að kasta á hádegi í gær og dældum síðustu tonnunum um borð á hádegi í dag, en þess má geta að það er ekki veiði þegar það er myrkur. Við fylltum okkur og restin fór í súluna(bátin). Nú tekur við ca. sólahrings sigling austur á firði þar sem menn bíða spenntir eftir komu okkar. Súlan mætt til að taka restina hjá okkur, en við tókum 650 tonna kast í morgunn. Keli sæmilega sáttur sýnist mér. Þarne eru tveir kiddar á ferðinni, sýnist annar þeirra vera að segja einhverja veiðisögu. 15.2.2010ÚtleiðGóðan dag gott fólk. Af okkur er það helst að frétta að við erum á útleið og erum í þessum töluðu orðum staddir við Kötlutanga í fjárans sandroki. Allt er á rólegu nótunum hér um borð þó að það sé háloðnuvertíð, vorum við ekki nema 41 tíma að landa síðast þessum 876 tonnum sem við vorum með til frystingar á Nes. Eitthvað virðist vera til að þessari loðnu og erum við búnir að sjá loðnu með mest allri suðurströndinni, t.d kastaði Hákon EA rétt vestan við Ingólfshöfða í gær og fékk 400 tonna afla af nokkuð vænni loðnu. Í þessari inniveru þá fundu menn sér sitthvað til dundurs , og skelltum við okkur þrír saman á skíði upp í Oddskarð í eindæma veðurblíðu og verð ég að segja að það svæði kom allverulega á óvart , en það var allveg frábært nema að þeir loka kl 16:00 á laugardegi sem við skiljum ekki, eitthvað voru menn hræddir við að sumir færu á skíði eftir 14-15 ára hlé og töluðu um að við myndum enda inni á spítala en það var miskilningur . En svo er nú bara að vona að við förum að fá viðbót við loðnuna. 11.2.2010Fréttir.Er eitthvað að frétta ,, jú það er bara allt ljómandi gott að frétta hér um borð. Við erum nú í þessum töluðu orðum á leiðinni til Neskaupsstaðar með skammtinn okkar af loðnu til frystingar og er þetta mjög stór og falleg loðna eða um 39 stk í kg beint úr nót. Þessi veiðiferð gekk ljómandi vel við köstuðum fyrst í gær við Selvog til að taka fyrri skammt og gáfum Hákon restina eða 120 tonn, og svo aftur í dag við Krísuvíkurbjarg til að taka seinni skammt og gáfum Vilhelm restina eða rúm 400 tonn en við erum með eitthvað um 850 tonn. Það sem er sérstakt við þessa vertíð er að það er allt frekar rólegt yfir þessu á miðunum lítið af skipum og engin æsingur því allir eru eingöngu að veiða til frystingar, því þurfum við að haga veiðum eftir því til að koma ekki með gamlan fisk í land. Er þetta talsverð lóðning á ferðinni og er það mál manna að það hafi bæst við hana síðan við byrjuðum að elta hana vestureftir. Svo er loðna rétt austan við Ingólfshöfða og einnig fyrir austan land og bindum við MIKLAR vonir við að það verði bætt einhverju við. Norðmennirnir voru ekki lengi að fiska sinn kvóta , en þeir voru að fá upp í 500 tonn köst austur af landinu í síðustu viku. 6.2.2010LandleiðGóðan dag kæru netverjar. Af okkur er allt gott að frétta, við skelltum okkur eins og fyrr sagði á loðnu, og erum nú á landleið eftir að að hafa fyllt kælinguna í stálmagann á þeim gula. Þessi túr gekk ekki reyndra áfallalaus fyrir sig því í fyrsta kastinu skelltu 2 hvalir sér inni í nótahringinn og neituðu að fara út allveg sama hvað við báðum þá vel, enda mikill matur þar inni, en þeir skelltu sér bara í gegnum netið og rifu nótina fyrir okkur og misstum við það kast. Svo þegar búið var að gera við þá var kominn bræla og biðum við í rúman sólahring þangað til kaptein Gísla fannst veðrið þokkalegt og tókum við 3 köst sem reyndist nóg til að fylla stálmagann og er það mál manna að þetta sé óvenju stór og falleg loðnu hér á ferð og erum við á leiðinni til Neskaupsstaðar og verða væntanlega fagnaðrfundir þegar við mætum í frystihúsið. Svo að öðru þá er annar vélstjórinn okkar fimmtugur í dag hann Jón Erlingsson, hann er búinn að vera hér með okkur síðan 1998 , þannig að þetta er 12 árið hans hér, þá var hann stuttu áður kominn heim frá Chile þar sem hann bjó og starfaði í nokkur ár, enda skildum við ekkert hvað hann sagði fyrstu tvö árin. En hann er reyndar flúinn land aftur því hann er nýfluttur til Danmerkur og því talar hann bara dönsku við okkur núna, enda að æfa sig . Og óskum við honum til innilega til hamingju með daginn.. Þarna er hann í hamingju vímu með páskeggið sitt og létt roka með. 4.2.2010LoðnuvertíðÞað var eins og fyrir var búið að spá, Gulldepluvertíðin endaði snögglega og stefnan sett á loðnuveiðar. Fyrst þurftum við að kíkja upp á skaga og losa okkur við Gulldepluaflan sem kominn var í skipið og svo þrífa lestarnar hátt og látt. Mannskapurinn fór á dekk vopnaður háþrýstidælum og öflugum hreingerningarvörum á landleiðinni, þegar komið var í land var bætt við sjóðandi heitu vatni úr Deildartunguhver. Ekki veitti af öllum þessum búnaði til að ná fituskánini sem lá á lestunum. Þess má geta að Gulldepluvertíðinni var slúttað um borð með hefðbundnu fæði sem hentar þessum tíma ársins, það var meðal annars sviðin og þverskorin andlit, súrsuð kynfæri, þurkaður fiskur, hangið kjöt, rófustappa og margt fleira. Þegar þrifunum var lokið fengu heimamennirnir nokkra klukkutíma til að kyssa betri helminginn bless, held ég að ég hafi aldrei kysst konuna jafn oft bless eins og núna í janúar enda lönduðum við allri Gulldepluni á skaganum. Núna erum við við Skaftárósa og erum að býða eftir að geta byrjað að veiða. Ástæðan fyrir því að við erum ekki byrjaður er að nú skal hver padda sem veidd er fryst og send til austur-Evrópu þar sem þessi fiskur þykir víst herramannsmatur. Börkur fór í land í morgunn og ætti því að vera óhætt fyrir okkur að byrja í fyrramálið. Við munum landa eins og venjulega á Norðfirði, en það eru komnir einir 3 mánuðir síðan við vorum þar síðast og miða við kommentin hér fyrir ofan þá eru einhverjir farnir að sakna okkar. Hér má sjá hluta af kræsingonum á þorrablótinu hjá okkur 1.2.2010Endurnýjun lífdagaKæru netnotendur og aðrir gestir sem römbuðu inn á bloggsíðuna hjá okkur. eins og allir meðalgreindir menn og konur sem kíktu á bloggið hjá okkur síðustu mánuði hafa tekið eftir, hefur bloggið ekki verið upp á marga fiska. Eigilega bara ekki neinn fisk, almennt andleisi og tjáningar skortur hefur bagað bloggara hér um borð og hafa margir kvartað yfir því, mun fleiri en manni grunaði. Við höfum því ákveði vegna fjölda áskorana að hefja aftur reglulegt blogg og mun það vera með svipuðu sniði og var í upp hafi. Það sem við byðjum ykkur um lesendur góðu, er að kommenta reglulega og láta ekki málfars og stafsetningarvillur fara í taugarnar á ykkur. Fyrir þá sem eru þjáðir af fullkomnunaráráttu gangvart íslensku máli og geta ekki látið það kjurt liggja, munum við hafa hérna möppu á síðunni okkar þar sem verða geymdar kommur, punktar, stórir stafir, ypsilon og fleira skraut til að skreyta textan, þessa möppu verða notendur bara að nota að vild. En allavega það sem er að frétta hjá okkur er að við erum búnir að vera að hjakkast á Gulldeplu í janúar og hefur það oft gengið betur. Góðu fréttirnar eru að það er búið að gefa út loðnukvóta og stefnir í loðnuvertíð hjá okkur, sem er bara alls ekkert leiðinlegt. Það kemur í ljós á næstunni kvenær við förum á loðnu, en það eru einhverjir byrjaðir og aflafréttir hafa borist frá Vilhelm ea en hann var að veiða í Lónsbugtinni að mig minnir. |
Símar og e-mail
Símar Brú: 540-7977